Þjónusta

Rétta aðstoðin.
Á réttum stað.

Við tökum að okkur afmörkuð verkefni og áframhaldandi samstarf. Við ræðum hvað þú þarft og finnum umfang sem hentar, hvort sem þú ert með eigið tæknifólk eða þarft sjálfstæða aðstoð.

  1. 01

    Linux: hönnun & uppsetning

    Við hönnum Linux-umhverfi og setjum upp nýja þjóna. Við förum yfir kröfur um afköst, tengingar og hlutverk kerfanna áður en uppsetning hefst. Þú færð skjalfesta uppsetningu sem hægt er að taka í rekstur og byggja áfram á.

    • Debian / Ubuntu
    • RHEL / Alma Linux
    • Kerfishönnun
  2. 02

    Linux: rekstur & viðhald

    Við sinnum daglegum rekstri, bilanagreiningu og reglulegu viðhaldi Linux kerfa. Það felur í sér öryggisuppfærslur, útgáfuuppfærslur og flutning af útgáfum sem eru komnar að lokum stuðningstíma (EOL). Við skipuleggjum breytingarnar með þér og skráum það sem er gert.

    • Öryggisuppfærslur
    • Útgáfuskipti / EOL
    • Viðhald & skjölun
  3. 03

    Öryggi & áreiðanleiki

    Við förum yfir aðgangsstýringar og stillingar og setjum upp vöktun sem nýtist í þínum rekstri. Þú færð skýra mynd af stöðunni og tillögur að úrbótum.

    • Vöktun
    • Öryggisstillingar
    • Aðgangsstýringar
  4. 04

    Innviðir & ráðgjöf

    Við kynnum okkur núverandi kerfi og það sem reksturinn þarf á að halda. Út frá því leggjum við til raunhæf næstu skref, hvort sem kerfin eru á eigin vélbúnaði, í skýi eða hvort tveggja. Við útskýrum kosti og galla svo þú getir tekið upplýsta ákvörðun.

    • Hönnun innviða
    • Flutningar
    • Tæknileg úttekt

Vinnulag

Svona vinnum við.

  1. 01

    Við hlustum

    Þú segir okkur frá rekstrinum, kerfunum og því sem þú vilt ná fram. Við spyrjum og kynnum okkur stöðuna.

  2. 02

    Skýr áætlun

    Við komum okkur saman um verkefnið, forgangsröðun, verð og næstu skref áður en vinna hefst.

  3. 03

    Vinna og eftirfylgni

    Við vinnum verkið, prófum og skráum það sem er gert. Við förum yfir niðurstöðuna og ræðum hvort þörf sé á frekari aðstoð.

Hvað vantar þig aðstoð við?

Segðu okkur aðeins frá rekstrinum og því sem þú ert að velta fyrir þér. Það er góður staður til að byrja.